Á vegum íslenskulektorsins við UiB verða sýndar fjórar íslenskar kvikmyndir í haust. Sýningarnar verða í kvikmyndasalnum á Cinemateket USF á Nordnes (Verftið) og er dagskrá eftirfarandi:
30.September. Börn náttúrunnar
07.Október. Hafið
14.Október. Mýrin
04.Nóvember. Cold Fever
Sýningar hefjast 16.30 alla dagana og er aðgangur ókeypis.



Er ekki möguleiki að sýna síðustu myndina kl 17.30 í staðin fyrir 16.30 ????
Málið er að maður er í vandræðum með að ná þessu á þeim tíma sem er núna 16.30 koma sér heim í sturtu, skyfta um föt og koma sér í strætó niður í bæ ;-( tala nú ekki um ef það er einhver traffík sem er nú oft og yðulega á þessum tíma.
Með kv. Frissi #1 Friðrik Stefánsson (Heimasíða) þann 14.10.09 21:01 (Svara)
Við höfum áður reynt að færa tímann lengra fram á kvöld en Bíófélagið (Cinemateket) er með sínar eigin kvikmyndadagskrár sem hafa rekist á þessa og þess vegna hefur það reynst snúið. Þetta verður hins vegar haft í huga fyrir vormisserið.