Sunnudagsskóli og íslenska fyrir börn og unglinga
Ágætu félagsmenn.
Sunnudagana 15. nóvember og 6. desember klukkan 14:00 verður starfræktur sunnudagaskóli íslensku kirkjunar í Noregi.
Þann 15. nóvember hefur sunnudagaskólinn fengið inni í Skjold-kirkju en þann 6. desember í Åsane-kirkju samtímis hátíðarguðþjónustu íslensku kirkjunnar. Efni sunnudagaskólans höfðar sérstaklega til yngri barna á aldrinum 2 til 6 ára og er samveran um 40 mínútur. Umsjón með sunnudagaskólanum hefur Helga Sigríður Þórsdóttir kennari.
Samtímis verður boðið upp á íslenskukennslu fyrir börn á grunn-
skólaaldri og mun Ragnheiður Kristinsdóttir annast kennsluna. Viljum
við biðja félagsmenn um að hafa samband við stjórn á netfangið: arnagud@online.no ef áhugi er á kennslu fyrir börnin svo hægt sé að
áætla fjölda og aldur þátttakenda. Íslendingafélagið og Íslenska Kirkjan
í Noregi sjá um að útvega námsefni bæði fyrir sunnudagaskólann og
íslenskukennsluna.
Að loknum sunnudagsskólanum verður boðið upp á hressingu.
Ef þið vitið um Íslendinga sem eru nýfluttir til Bergen og/eða aðra sem
eru ekki í Íslendingafélaginu þá eruð þið vinsamlegast beðin um að
koma þessum upplýsingum áfram.
Heimilisföng kirknanna:
Skjold – kirkja (í kjallara kirkjunnar, gengið inn vinstra megin niður fyrir kirkjuna)
Skjoldlia 55, 5236 Rådal
Åsane-kirkja
v/Åsane senter, Ulset
5873 Bergen
Auglýsingin á PDF


