Skráning á þorrablótið hefur gengið mjög vel og lítur allt út fyrir það að salurinn sem við höfum til umráð sé að fyllast. Vil ég því biðja ykkur um að skrá ykkur sem fyrst til að vera örugg með sæti.
Salurinn tekur 90 mans í sæti og undanfarin 2 ár hefur mikið af nýjum félögum bæst í félagið, allt bendir til þess að þetta verði stærsta þorrablót félagsins í langan tíma.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kv, Nefndin og Skemmtinefndin.



