Sunnudagaskóli íslenska safnaðarins í Noregi verður haldinn nú á sunnudaginn 28. febrúar klukkan 14:00 í Skjold Kirke. Við höfum fengið afnot af svokölluðu skátalofti sem er yfir safnaðarheimilinu og skrifstofum kirkjunnar.
Við höfum ca. hálftíma stund saman með söngvum og sögum. Á eftir geta börnin litað myndir, fengið sér hressingu og foreldrarnir spjallað saman.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Helga Sigríður Þórsdóttir


