Myndirnar tók Erna Gunnarsdóttir.
- Christian Louboutin Black Fifre Booties
- Fendi Blue Fabric Monogram Shopping Bag
- Chloe Patent Red Cyndi Tote
- Christian Louboutin Black Multi Booty 140 Boots
- Louis Vuitton Monogram Vernis Red Coin Purse
- Bottega Veneta Golden Intrecciato Nappa Umbria Sloane Bag
- Louis Vuitton Damier Ebene Canvas Naviglio
- Bally Black Goffered Handbag
- Chloe White Handbag
- Alexander Wang Black Donna Hobo
- Burberry Black Low Top Trainers
- Chanel Green Camellia Flat Sandals
- Burberry Silver Classic Handbag
- Burberry Silver Nova Clutch
- Hermes Deep Coffee Crocodile Birkin M Bag
- Christian Louboutin Lima Buckled Sandals
- Balenciaga Grey Medium Motorcycle
- Lancel Pearl Premier Flirt
- Alexander McQueen Red Faithful Peep Toe Pumps
- Hermes Wheat Crocodile Birkin M Bag
- Manolo Blahnik Blue BB
- Fendi Black Woven Zucca Spy Bag
- Anya Hindmarch White Hobo
- Christian Louboutin Globe 100 suede boots
- Badia Moncler Very Shiny
- Louis Vuitton Monogram Idylle Neo
- Hermes Pink Ostrich Birkin M Bag
- Giuseppe Zanotti Multi Straps Sandals
- Jimmy Choo White Perforated Ornament Lohla Bag
- Chloe Patent Black Cyndi Tote
- Dolce
Þriðjudagur, 22. júní 2010
Myndir frá 17. júní
Mánudagur, 21. júní 2010
Kerra og barnajakki gleymdust
Kerra og barnajakki gleymdust á 17. júní hátíðarhöldum Íslendingafélagsins.
Eigandi er vinsamlegast beðin að hafa samband við Hjalta í síma 415 15 940
Sjá mynd.
Halda áfram að lesa "Kerra og barnajakki gleymdust" »Fimmtudagur, 17. júní 2010
Til hamingju með daginn

Sjáumst þann 19 júní.
(upplýsingar um hátíðarhöld er að finna á færslunni hérna fyrir neðan.)Þriðjudagur, 8. júní 2010
17. júní
Kæru Landsmenn
Þann 19.júní mun íslendingafélagið í Bergen halda Þjóðhátíðardaginn hátíðlegan.
Munum við koma saman í Skátaheimilinu að Sandvikveien 41. (sjá kort).
Hátíðarhöld byrja kl 14:00-18:00
Við viljum biðja fólk að mæta tímanlega og taka þátt í skrúðgöngunni sem hefst kl 14:30
Við munum grilla og mun íslendingafélagið sjá um grill og grillkol.
Allir eru beðnir um að taka með sér á grillið. Og þeir sem geta að taka með sér útistóla ef veður leyfir, félagið er svo með partýtjald.
Kaffi og meðlæti á boðstólnum.
Til sölu verður Bjór, vín og gos gegn vægu gjaldi.
Leikir verða fyrir börn og fullorðna og að venju verður Happadrætti.
Til að létta undir undirbúningi fyrir hátíðarhöldin þætti okkur vænt um ef þið gætuð skráð ykkur með fjölda af fullorðnum og börnum 17juni@isbjorg.com .
Vonumst til að sjá sem flesta,
StjórninFöstudagur, 30. apríl 2010
Hvítasunnudaginn 23. Maí verður Hittingur hjá Íslendingafélaginu
Hvítasunnudaginn 23. Maí verður Hittingur hjá Íslendingafélaginu milli kl 14-17
Við munum hittast við Kvandeskogen eða Tenebekktjern, hægt er að leggja við Nipedalen (sjá kort).
Auðvelt er að komast að svæðinu svo sem með barnavagna og kerrur.
Tilgangurinn er að sýna sig og sjá aðra íslendinga. Hafa gaman af og fara jafnvel í einhverja leiki með krökkunum.
Allir eru hjartanlega velkomnir hvort sem þeir eru meðlimir í félaginu eða ekki, bara mæta og hafa gaman.
Við ætlum að grilla saman og mun íslendingafélagið sjá um grill og kol en fólk beðið um að koma með sitt á grillið ásamt drykkjarföngum.
ATH!
Ef veður verður mjög slæmt á sunnudegi þá munum við kannski flytja hittinginn yfir á mánudaginn 24. Maí eða annan í Hvítasunnu.
Með von um að sjá sem flesta,
Íslendingafélagið BjörgvinLaugardagur, 24. apríl 2010
Aðalfundur Íslendingafélagsins í Björgvin
Aðalfundur Íslendingafélagsins í Björgvin Var haldinn mánudaginn 19. Apríl 2010 á Aroma restaurant
Mættir voru
Hjalti Gíslason
Guðrún A. Sig.
Ásta Wiencke
Erna Jóhannsdóttir
Jens Klein
Katrín E. Ingvadóttir
Jón Guðmansson
Friðrik Stefánsson
Kristjana Jónasdóttir
Maríanna Rós Guðmundsdóttir
Hjalti var fundarstjóri og setti fundinn
-las upp ársskýrslu 2009
-fór yfir Rekstrarreikning og kom félagið út í plús.
Rætt var um Ársgjald félagsins og voru allir á því að halda sama verði áfram. 300 kr fyrir hjón og 180 kr fyrir einstakling.
Engar lagabreytingar komu fram fyrir aðalfund því var ekki þörf á að ræða það frekar.
Kosið var í nýja stjórn:
Arna Guðmundsdóttir sagði af sér sem Ritari félagsins
Maríanna Rós Guðmundsdóttir bauð sig ein fram fyrir ritara stöðunni og voru allir samþykktir.
Hjalti Gíslason gaf áfram kost á sér sem gjaldkera félagsins, enginn annar gaf kost á sér og voru allir samþykktir að hann héldi áfram.
Erna Jóhannsdóttir gaf áfram kost á sér sem formann félagsins, enginn annar gaf kost á sér og voru allir samþykktir að hún héldi áfram.
Í meðstjórn var kosið og eru þetta þau:
Friðrik Stefánsson
Kristjana Jónasdóttir
Ásta Wiencke
Guðrún A. Sig.
Ingþór Sigurðarson sagði af sér í stjórn, en bauðst til að halda áfram með heimasíðu félagsins. Stjórn félagsins er hæst ánægð með það og þakkar Ingþóri kærlega fyrir samstarfið.Íslendingafélagið í Björgvin vill þakka Örnu og Ingþóri fyrir þeirra framlag til félagsins en þau hafa bæði verið í stjórn í 4 ár.
þess ber einnig að geta að reka svona félagskap er ekki sjálfsagt mál, það starf sem stjórn Íslendingafélagsins í Björgvin hefur unnið er óeigingjarnt og að öllu leiti í sjálfboðavinnu. Fyrir 2 mánuðum síðan lagðist íslendingafélagið Hugi af sökum þess að enginn sá sér fært um að stjórna félaginu og þeir stjórnendur sem höfðu rekið félagið undanfarin ár gáfu ekki kost á sér.
það er því gelðilegt að sjá að Íslendingafélagið í Björgvin er með sterka stjórn og fólk sem vinnur óeigingjarnt starf.Félagsmönnum er einnig bent á að senda inn hugmyndir til Íslendingafélagsins um uppákomur eða eitthvað sem félagið gæti tekið að sér að framkvæma.
Íslendingafélagið í Björgvin
24.apríl 2010Sunnudagur, 18. apríl 2010
AÐALFUNDARBOÐ
Íslendingafélagið í Björgvin boðar til aðal- fundar mánudaginn 19. apríl kl. 19:30.
Fundurinn verður haldinn á Aroma restaurant, Vetrilidsalmenningen 4.
Dagskrá fundarins:
1. Ársskýrsla stjórnar
2. Reikningar félagsins
3. Framkvæmd 17. júní
4. Kjör stjórnar
5. Önnur mál
Viljum við hvetja fólk til að mæta svo að félagið megi blómstra komandi framtíð.
Stjórn Íslendingafélagsins í BjörgvinLaugardagur, 20. febrúar 2010
Takk fyrir
Íslendinga félagið í Björgvin vill þakka öllum sem komu á þorrablót 2010.
Blótið heppnaðist mjög vel að öllu leiti og gaman að sjá félagið í vexti.
Þriðjudagur, 9. febrúar 2010
Fréttabréf febrúar 2010
Laugardagur, 30. janúar 2010
Skráning á þorrablót
Skráning á þorrablótið hefur gengið mjög vel og lítur allt út fyrir það að salurinn sem við höfum til umráð sé að fyllast. Vil ég því biðja ykkur um að skrá ykkur sem fyrst til að vera örugg með sæti.
Salurinn tekur 90 mans í sæti og undanfarin 2 ár hefur mikið af nýjum félögum bæst í félagið, allt bendir til þess að þetta verði stærsta þorrablót félagsins í langan tíma.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kv, Nefndin og Skemmtinefndin.
Sunnudagur, 3. janúar 2010
Þorrablót 2010
Vegna óviðráðanlegra orsaka verðum við að breita dagsetningu og staðsetningu á áður auglýstu þorrablóti.
Þorrablótið verður haldið þann 19. febrúar nk. Húsið opnar kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 20.00. Dagskrá Þorrablóts er með hefðbundnu sniði, frábært hlaðborð, skemmtileg tónlist og góðir gestir.
Að þessu sinni verður Þorrablót haldið í Fensalen,
Kong Oskarsgate 15.

Vinsamlega staðfestið mætingu sem fyrst. Hægt er að leggja inn miðapantanir fyrir Þorrablót á netfangið:isbjorg@gmail.com hér:
Sunnudagur, 25. október 2009
Sunnudagaskóli
Sunnudagsskóli og íslenska fyrir börn og unglinga
Ágætu félagsmenn.
Sunnudagana 15. nóvember og 6. desember klukkan 14:00 verður starfræktur sunnudagaskóli íslensku kirkjunar í Noregi.
Þann 15. nóvember hefur sunnudagaskólinn fengið inni í Skjold-kirkju en þann 6. desember í Åsane-kirkju samtímis hátíðarguðþjónustu íslensku kirkjunnar. Efni sunnudagaskólans höfðar sérstaklega til yngri barna á aldrinum 2 til 6 ára og er samveran um 40 mínútur. Umsjón með sunnudagaskólanum hefur Helga Sigríður Þórsdóttir kennari.
Samtímis verður boðið upp á íslenskukennslu fyrir börn á grunn-
skólaaldri og mun Ragnheiður Kristinsdóttir annast kennsluna. Viljum
við biðja félagsmenn um að hafa samband við stjórn á netfangið: arnagud@online.no ef áhugi er á kennslu fyrir börnin svo hægt sé að
áætla fjölda og aldur þátttakenda. Íslendingafélagið og Íslenska Kirkjan
í Noregi sjá um að útvega námsefni bæði fyrir sunnudagaskólann og
íslenskukennsluna.
Að loknum sunnudagsskólanum verður boðið upp á hressingu.
Ef þið vitið um Íslendinga sem eru nýfluttir til Bergen og/eða aðra sem
eru ekki í Íslendingafélaginu þá eruð þið vinsamlegast beðin um að
koma þessum upplýsingum áfram.
Heimilisföng kirknanna:
Skjold – kirkja (í kjallara kirkjunnar, gengið inn vinstra megin niður fyrir kirkjuna)
Skjoldlia 55, 5236 Rådal
Åsane-kirkja
v/Åsane senter, Ulset
5873 BergenAuglýsingin á PDF
Miðvikudagur, 16. september 2009
Opið hús
Sunnudaginn 27. september verður opið hús að Kong Oskarsgate 88, 2. hæð, milli kl. 14.00 - 16.30.
Tilefni þess er að sýna sig og sjá aðra. Íslendingafélagið hefur fengið talsvert af fyrirspurnum frá aðfluttum íslendingum varðandi aðlögun í Bergen. Við hvetjum alla til að mæta og miðla af sinni reynslu og visku.
Léttar veitingar verða á staðnum.
Allir eru velkomnir, hvort sem þeir eru meðlimir í félaginu eða ekki.
Ef einhverjir luma á bókum, myndum, námsefni eða öðru sem tengist Íslandi og vilja losa sig við, getur verið snjallt að koma með það á staðinn og leyfa öðrum að njóta góðs af.
Í von um að sjá sem flesta,
Íslendingafélagið í Bergen.Mánudagur, 13. júlí 2009
Tenglar
Vorum að bæta inn nokkrum tenglum í tengla safnið okkar, sökum mikilla spurninga tengda atvinnu viljum við benda fólki á að skoða "ATVINNA" í tenglasafninu okkar.
Einnig viljum við benda fólki sem er að skoða möguleika á vinnu og fluttningi til Noregs að skoða Halló Norðurlönd
Kv. stjórnin
(Blaðsíða 1 af 2, með samtals 30 færslur) næsta síða




