
Ísland tekur á móti Norðmönnum í fótbolta í undankeppni EM á Íslandi á Föstudaginn 3 september.
Ísland og Noregur hafa mæst 28 sinnum í A-landsliðum karla og hefur íslenska liðið ekki leikið jafn oft gegn neinu liði. Ísland hefur unnið 7 sinnum, fimm sinnum hafa liðin gert jafntefli, en Norðmenn hafa farið með sigur af hólmi 16 sinnum. Þessar frændþjóðir voru einnig saman í riðli í undankeppni HM 2010 og gerðu liðin þá jafntefli í báðum viðureignunum, og í báðum leikjum var íslenska liðið óheppið að landa ekki sigri.
Skyldu strákarnir okkar stíga skrefinu lengra að þessu sinni og leggja Norðmenn? Leggðu þitt af mörkum og tryggðu þér miða á leikinn!
Styðjum strákana okkar! Áfram Ísland!
fengið af heimasíðu ksi.is
Fréttatenglar:
Forklarer finanskrisen på fotballspråk
Drillo: Við þurfum að ná fram hefndum
Búið að selja 5000 miða
Leikurinn í beinni á BT.no
Leikmanna hópurinn
Áfram Ísland
Er einhver áhugi fyrir því að stofna lið ?
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram í sendiráðinu í Osló allra virka daga til kjördags frá kl. 10.00 til 15.00.




