Ég er 43 ára áhugamaður um útivist. Ég hef farið í margar ferðir bæði fótgangandi og á kajak.
Ferðin sem ég ætla að fara í sumar er merkileg af mörgu leiti, nokkrir hafa áður gengið þvert yfir þessi lönd en það hefur enginn farið af stað án matar og lifað eingöngu á því sem náttúran gefur af sér. Tilgangur ferðarinnar er að safna áheitum fyrir barnastarf Blindrafélagsins og einnig til að sýna fram á hversu þægilegan og í rauninni einfaldan dag við höfum sem eigum að teljast heilbrigð. Ég er ekkert öðruvísi en flestir aðrir með það að ég hef eiginlega tekið lífinu, heilsunni, heilsu barna minna og öðru þess háttar sem sjálfsögðum hlut, þar til fyrir tveimur árum er dóttir mín greindist með ólæknandi augnsjúkdóm og síðan þegar sonur minn fjögurra og hálfsárs lést í fyrra. Þegar slíkir hlutir gerast þá er oft sem maður vakni upp við vondan draum og átti sig á því að maður geti ekki tekið öllu sem sjálfsögðum hlut. Ég vona að sem flestir séu tilbúnir að heita einhverjum krónum á barnastarf Blindrafélagsins ef ég næ markmiði mínu og ég veit að þær krónur geta gert mjög mikið fyrir þau mörgu blindu og sjónskertu börn sem njóta frábærrar aðstoðar Blindrafélagsins. Ég veit að ég á eftir að berjast við hungurtilfinningu, þreytu og margs annars á þessari ferð minni og ég vona að ég eigi eftir að standast það álag sem því fylgir.
Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn, Vignir Arnarsson
http://www.vignirarnarson.com/
- Christian Louboutin Black Fifre Booties
- Fendi Blue Fabric Monogram Shopping Bag
- Chloe Patent Red Cyndi Tote
- Christian Louboutin Black Multi Booty 140 Boots
- Louis Vuitton Monogram Vernis Red Coin Purse
- Bottega Veneta Golden Intrecciato Nappa Umbria Sloane Bag
- Louis Vuitton Damier Ebene Canvas Naviglio
- Bally Black Goffered Handbag
- Chloe White Handbag
- Alexander Wang Black Donna Hobo
- Burberry Black Low Top Trainers
- Chanel Green Camellia Flat Sandals
- Burberry Silver Classic Handbag
- Burberry Silver Nova Clutch
- Hermes Deep Coffee Crocodile Birkin M Bag
- Christian Louboutin Lima Buckled Sandals
- Balenciaga Grey Medium Motorcycle
- Lancel Pearl Premier Flirt
- Alexander McQueen Red Faithful Peep Toe Pumps
- Hermes Wheat Crocodile Birkin M Bag
- Manolo Blahnik Blue BB
- Fendi Black Woven Zucca Spy Bag
- Anya Hindmarch White Hobo
- Christian Louboutin Globe 100 suede boots
- Badia Moncler Very Shiny
- Louis Vuitton Monogram Idylle Neo
- Hermes Pink Ostrich Birkin M Bag
- Giuseppe Zanotti Multi Straps Sandals
- Jimmy Choo White Perforated Ornament Lohla Bag
- Chloe Patent Black Cyndi Tote
- Dolce
Laugardagur, 3. júlí 2010
þvert yfir Noreg og Svíþjóð lifandi einungis á náttúrunni.
Fimmtudagur, 10. júní 2010
Icelandair til Þrándheims (og Bergen af sjálfsögðu)
Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Þrándheims í Noregi. Flogið verður til og frá borginni tvisvar í viku til 8. október í haust með viðkomu í Bergen á leiðinni frá Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu. Í tilefni dagsins tóku borgarstjóri Þrándheims, Tore O Sandvik, á móti Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair og öðrum farþegum þegar Icelandair þotan lenti í Þrándheimi, en þar var haldin stutt móttökuathöfn. Áhöfnin í fyrsta fluginu til Þrándheims. Icelandair hefur um árabil flogið daglegt áætlunarflug til Osló, en hóf fyrir þremur árum reglulegt flug til Bergen á vesturströnd Noregs. Í sumar verður flogið 10 ainnum í viku til Osló, fjórum sinnum í viku til Bergen og tvisvar í viku til Þrándheims og Stavanger. Bókanir í Þrándheimsflugið eru umfram væntingar og hefur þegar verið bætt við flugi í haust af þeim sökum.
Frétt fengin af vef http://mbl.is
Sunnudagur, 16. maí 2010
það er farið að gjósa
Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum að það stendur yfir gos á Íslandi, frétti frá öllum heimshornum hafa fjallað um málið og mikil röskun hefur orðið á flugi vegna gossins.
NRK sýndi þátt um gosið í Eyjafjallajökli fyrir stuttu og er hægt að nálgast þáttinn hérna.
Mikið af myndum og myndskeiðum hafa byrst á netinu og er hægt að finna part af því hér.
Halda áfram að lesa "það er farið að gjósa" »Fimmtudagur, 17. desember 2009
Blandan mín og blandan þín
... Egils Malt og appelsín.
Nei ekki alveg, en þetta er það sem ég hef komist næst því að bragðast eins og malt og appelsín.
Og dæmi nú hver fyrir sig !
Laugardagur, 12. desember 2009
Nafn félagsins ?
Félagið heitir Íslendingafélagið í Bergen, stundum hefur nafnið verið stytt og er þá kallað Ísbjörg, sem er mjög góð stytting að mínu mati. Einn meðlimur félagsins var að velta fyrir sér enska heitinu á félaginu. Nafnði sem kom fyrst upp í hugann var ansi skondið.
Hvaða nafn færð þú upp þegar að þú setur Ísbjörg yfir á Ensku ?
Sjá Enska heitið á Ísbjörg.
Halda áfram að lesa "Nafn félagsins ?" »Mánudagur, 7. september 2009
Islandsk kveld
SVIÐAHAUSAR
Íslendingafélagið Hugi auglýsir:
"HAUSAKVÖLD" Huga verður haldið laugardagskvöldið 24.oktober.2009 í Rauðakross-húsinu í Åkrehamn.Dagskrá auglýst síðar.
Fylgist með á heimsíðu Huga. www.hugi.no
Fimmtudagur, 3. september 2009
Klukkan 8 heima hjá mér !
Klukkan 8 heima hjá mér er þáttur sem sýndur er á TV3. Í gærkvöldi var Ole Íslendigur gestgjafi og bauð upp á hákarl og brennivín.
Ole R. Pedersen (32) er en islending bosatt i Bergen med mange jern i ilden. Blant annet skriver han på en barnebok. Ole er glad i å ta seg en fest og åpner gjerne dørene sine for gjester, også ukjente.
kennarar í Norðlingaskóla og leikskólanum Rauðhól fóru saman til Bergen
Nokkrir kennarar í Norðlingaskóla og leikskólanum Rauðhól fóru saman til Bergen í Noregi á útikennslunámskeið nú í byrjun júní - en öflugt samstarf er milli Norðlingaskóla og Rauðhóls.Norska sjónvarpið sagði frá þessum íslensku valkyrjum á útikennslunámskeiði í óbyggðum Noregs. Skoða frétt.
Fengið af vef:
http://www.nordlingaskoli.isÞriðjudagur, 1. september 2009
Áfram Ísland!
Íslendingar og Norðmenn mætast á Laugardalsvellinum laugardaginn 5. september kl. 18:45. Þetta er lokaleikur íslenska liðsins í undankeppni HM 2010 og með sigri í leiknum tekst strákunum okkar að lyfta sér upp fyrir frændur okkar Norðmenn og senda þá þar með í botnsæti riðilsins.
A-landslið karla hefur mætt Noregi oftar en nokkru öðru landsliði, alls 26 sinnum, og hefur tekist að vinna 7 sinnum. Þrisvar sinnum hafa liðin gert jafntefli, en Norðmenn hafa unnið 16 leiki. Strákarnir okkar þurfa á stuðningi að halda og er fólk hvatt til að fjölmenna á leikinn og mynda brjálaða stemmningu.
Áfram Ísland!Góð klippa frá VG.NO
http://www.vgtv.no/?id=24008
Leikurinn er sýndur á viasat 4.
Ef einhverjir hafa áhuga á að hittast þá er facebook spjallið okkar opið og hver veit nema að það verði hittingur einhverstaðar.Fimmtudagur, 27. ágúst 2009
Ísland - Noregur
Ég vil mynna á EM í fótbolta kvenna sem fram fer í Finnlandi þessa stundina, Íslensku stelpurnar hafa staðið sig frábærlega fyrir mótið og eru á góðu róli.
Eitthvað af leikjunum er sýnt á eurosport. (99% viss um Ísland - Noregur sé sýndur.)
Í dag er Ísland að spila á móti Norðmönnum og byrjar leikurinn kl 19:00
Kennslumyndband með Ástu á vefnum

Á heimasíðu Evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA má finna kennslumyndband hvernig taka má löng innköst sem þó líka eru flott. Er það Ásta Árnadóttir, leikmaður Tyresö og íslenska landsliðsins sem kennir hvernig taka á innköst eins og hún er þekkt fyrir.
Myndbandið má sjá með því að smella hér.
Frétt fengin af vef www.ruv.is
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Ferðalag
Simmi og Jói eru búnir að gefa frá sér "nýtt" lag. Textinn er nýr, lagið er Eurovision lag Norðmannsins Alexanders: Fairytale. Á íslensku heitir lagið Ferðalag og er óður til allra íslendinga um að ferðast innanlands í sumar.
Hægt er að heyra lagið hér:
Fimmtudagur, 7. maí 2009
Íþróttaálfurinn í Bergen
Íþróttaálfurinn er staddur í Bergen og ætlar að starta ársins skemmtilegasta barnahlaupi.
Skráning er kl 11:00 þann 9 maí og byrjar hlaupið kl 12:00 á torgallmenningen.
Tengdar fréttir:
http://www.ba.no/puls/article4313568.ece
http://www.brann.no/index.php?valg=nyhet&nyhet=7662

Mánudagur, 23. mars 2009
Upplýsingar varðandi kosningar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er 25. mars og 16. apríl í Allehelgens gate 2 kl. 09:00 – 15:00 vegna Alþingiskosninga 25. apríl 2009. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi. Lista yfir ræðismenn er að finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins - http://www.utanrikisraduneyti.is/.
BergenKonsul: Inge Arne StøveAllehelgens gate 2NO-5811 BergenSími: +47 5521 8918Netfang: inge.stove@nordea.no
Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verður að finna á vefsetrinu: www.kosning.is
Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.Fimmtudagur, 5. mars 2009
Kosningar og kosningaréttur
Okkur hefur borist eftirfarandi tilkynning frá sendiráðinu:
Athygli er vakin á því að samþykktar hafa verið á Alþingi breytingar á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000. Breytingin heimilar íslenskum ríkisborgurum sem búsettir hafa verið erlendis lengur en 8 ár og vilja kjósa í Alþingiskosningunum 2009 að sækja um kosningarétt sinn til Þjóðskrár til 25. mars nk.
Lög um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum.
Umsókn íslensks ríkisborgara sem búsettur er erlendis um að verða tekinn á kjörskrá.
(Blaðsíða 1 af 2, með samtals 18 færslur) næsta síða


